Átján skólabræður

Fra heimskringla.no
Hopp til navigering Hopp til søk
Velg språk Norrønt Islandsk Norsk Dansk Svensk Færøysk
Denne teksten finnes på følgende språk ► Islandsk.gif


Þjóðsögur og ævintýri frá Íslandi

Íslenskar þjóðsögur og sagnir
Safnað og skráð hefur Sigfús Sigfússon.


Átján skólabræður


Eitt sinn voru átján skólapiltar á ferð yfir Skeiðarársand. Bar svo til að einn þeirra varð eftir af hinum að gera við hjá sér á hestinum en hinir lagsmenn hans riðu á undan. Þeir sjá þar þá einhverja mannslíkan skríða um sandinn á fjórum fótum. Sjá þeir að þetta er skessa. Hún skríður nú til þeirra og biður þá að hjálpa sér suður yfir ána. En þeir hlæja að henni og yfirgáfu hana þar og fóru leið sína.
   Nú kemur sá sem eftir varð af hinum. Hann hét Þórarinn og biður hún hann að hjálpa sér yfir ána. Hann kvað það velkomið ef hún treysti sér að komast á bak hestinum og ef hann gæti borið þau. Hún kvað hestinn bera þau og líka sagðist hún mundi komast á bak hestinum fyrir aftan Þórarin og flytjast þau þannig yfir ána.
   Og sem þau komu á land spyr hann hvert hún vilji halda. Hún segist ætla að halda inn með ánni, "og mun ég nú komast héðan til byggða minna og vildi ég einhvern tíma geta launað þér þessa greiðvikni sem þú hefur auðsýnt mér.
   En það kann ég þér að segja að vetur þessi verður hinn harðasti. Og nær sem þú kemur í Skálholt skaltu teyma hesta þína í brekkuna fyrir ofan staðinn. Skal ég þá hirða þá, það eftir er til vordaga og máttu, þegar þú ferð af stað úr skóla, vitja þeirra á sama stað sem þú skildir við þá." Hann þakkar henni fyrir þetta og síðan skilja þau með kærleikum.
   Ríður hann nú lengi eftir félögum sínum uns hann nær þeim. Hlæja þeir mjög að honum og segja hann hafi lengi dvalið hjá fallegu stúlkunni á Skeiðarársandi en Þórarinn lét sem hann heyrði það ekki. En sem þeir komu í Skálholt fer hann með hesta sína eins og fyrir hann var lagt.
   Leið svo fram að þorra um veturinn. Voru þá hestar allra skólapilta gerfallnir því að vetur var mjög harður. En um vorið þá er skólapiltar voru ferðbúnir gengur Þórarinn þangað sem hann skildi við hesta sína og standa þeir þar bundnir á streng og eru þeir feitari en um haustið. Verða nú lagsmenn hans forviða og spyrja hver hafi fóðrað hesta hans en hann gefur þeim ekkert svar upp á það. En svo fór að þeir máttu allir kaupa sér hesta til ferðarinnar nema Þórarinn.
   Mörgum árum seinna þegar Þórarinn var orðinn prestur var hann eitt sinn í kynnisferð og reið yfir Kjalveg snemma vors með einum unglingsdreng. Gerði þá að þeim ófæra snjóhríð svo þeir fóru afvega og bárust loks fyrir undir stórum steini og hugðu að þeir mundu láta þar lífið.
   Heyra þeir þá að þrammað er að steininum og sjá þeir þar koma ófrýnilega skessu. Hún biður þá með sér koma en prestur þorði það varla og fór þó af stað með henni. En þar kom að drenginn þraut að ganga. Stakk hún honum þá í styttu sína að aftanverðu. Og sem þau höfðu farið um stund þraut prest líka göngu. Tók þá skessan hann og lét hann koma í styttuna að framanverðu.
   Þrammar hún svo lengi uns hún sprettir þeim úr styttunni í einum hellisdyrum. Er þar fyrir ung stúlka og veita þær þeim góða sæng og beina um nóttina.
   En um morguninn spyr skessa prest hvort hann þekki sig ekki. Hann kvað nei við. Segir hún honum þá að þetta sé dóttir sín og hún hafi þá verið ólétt með léttasóttinni að henni þegar þau fundust á sandinum.
   Situr prestur nú þarna hjá henni í hálfan mánuð og fylgir hún honum síðan aftur á rétta leið. Prestur spyr hvað hún vilji að launum hjá sér fyrir alla hjálpina. Hún bað hann að gefa sér einu sinni að éta. Skilja þau síðan með kærleik miklum.
   En um haustið lét prestur drenginn reka 20 sauði gamla og uxa átta vetra gamlan til skessunnar. Er mælt hún hafi sent presti aftur ýmsa góðgripi, og hélst vinfengi þeirra alla ævi síðan.