Galdramennirnir í Vestmannaeyjum

Fra heimskringla.no
Hopp til navigering Hopp til søk
Velg språk Norrønt Islandsk Norsk Dansk Svensk Færøysk
Denne teksten finnes på følgende språk ► Islandsk.gif Dansk.gif


Þjóðsögur og ævintýri frá Íslandi

Úr þjóðsagnasafni Magnúsar Grímssonar og Jóns Árnasonar


Galdramennirnir í Vestmannaeyjum


Þegar svartidauði geisaði yfir Ísland, tóku átján galdramenn sig saman, og gerðu félag með sér. Þeir fóru út í Vestmannaeyjar, og ætluðu þar að verja sig dauðanum, meðan þess yrði auðið. Þegar þeir sáu, að sótinni var farið að létta af landinu, vildu þeir vita, hvort nokkur maður mundi lifa. Þeir tóku sig saman um að senda einn þeirra á land. Tóku þeir þann til þess, sem hvorki var mestur né minstur í íþrótt þeirra. Hann fluttu þeir í land, og sögðu, að ef hann yrði ei kominn aftur fyrir jól, mundu þeir senda honum sendingu, sem dræpi hann. Þetta var snemma á jólaföstunni. Maðurinn fór, og gekk lengi, og kom víða. En hvergi sá hann mann; bæirnir stóðu opnir, og önduð lík lágu á víð og dreif í þeim. Loksins kom hann að einum bæ lokuðum. Hann furðaði sig á því, og nú vaknaði hjá honum von um, að hann mundi finna mann. Hann barði að dyrum, og þar kom út ungleg stúlka, og fríð. Hann heilsaði henni, en hún hljóp um háls honum, og grét af gleði yfir því, að sjá mann; því hún sagðist hafa hugsað, að enginn lifði eftir, nema hún ein. Hún bað hann að vera hjá sér, og hann játaði því. Fóru þau nú inn, og töluðu margt saman. Hún spurði hann, hvaðan hann kæmi, og hvað hann væri að fara. Hann sagði henni það, og það með, að hann yrði að koma aftur fyrir jólin. Hún bað hann samt að vera hjá sér, sem lengst. Aumkvaðist hann svo yfir hana, að hann hét henni því. Sagði hún honum, að þar nærri væri enginn maður á lífi; því hún sagðist hafa farið vikuleið frá sér á alla vegu, og engan mann fundið. Nú leið fram undir jólin, og eyjamaðurinn vildi fara. Stúlkan bað hann að vera, og sagði, að félagar hans mundu ekki vera svo grimmir að láta hann gjalda þess, þó hann dveldi hjá sér, einstæðingnum. Lét hann svo tilleiðast, og nú var kominn aðfaradagur jóla. Þá ætlar hann að fara, hvað sem hún segi. Hún sér þá, að nú duga ei bænir lengur, og segir: "Heldurðu, að þú komist út í eyjar í kveld? eða þykir þér ekki eins gott að deyja hérna hjá mér, og deyja einhverstaðar á leiðinni"? - Hann sá, að tíminn var nú orðinn of naumur, og ásetti sér nú að vera kyr, og bíða dauða síns. Leið nú af nóttin, og var hann mjög daufur, en stúlkan var hin kátasta, og spurði, hvort hann sæi, hvað eyjabúum liði. Hann sagði, að nú væru þeir búnir að senda sendinguna í land, og mundi hún koma í dag. Stúlkan settist nú hjá honum á rúmið sitt, en hann lagðist upp í fyrir ofan hana. Hann sagði, að nú væri sig farið að syfja, og væri það aðsókn. Síðan sofnaði hann. Stúlkan sat á rúmstokknum, og var einatt að smá-vekja hann, og láta hann segja sér, hvar sendingin væri. En því nær sem hún kom, því fastar svaf hann, og seinast, þegar hann sagði, að sendingin væri komin í landareignina, sofnaði hann, svo hún gat ei vakið hann aftur. Enda leið þá ekki á löngu, áður hún sá gufu mórauða koma inn í bæinn. Gufa þessi leið hægt og hægt inn að henni, og varð þar að mannsmynd. Stúlkan spyr, hvort hún ætli að fara. Sendingin segir henni allt sitt erindi, og bað hana fara af rúminu, "því ég kemst ekki upp fyrir þig", segir hún. Stúlkan segir, að þá verði hún nokkuð til að vinna. Sendingin spurði, hvað það væri. Stúlkan segir, það sé það, að lofa sér að sjá, hvað hún geti orðið stór. Sendingin játar því, og verður nú svo stór, að hún fyllir upp allan bæinn. Þá segir stúlkan: "Nú vil ég sjá, hvað lítil þú getur orðið". Sendingin segist geta orðið að flugu, og í því bregst hún í flugulíki, og ætlar nú að komast undir hendina á stúlkunni upp í rúmið til mannsins. En þá lendir hún í sauðarlegg, sem stúlkan hélt á, og fór inn í han, en stúlkan setti tappa í gatið. Lét hún síðan legginn með sendingunni í í vasa sinn, og vekur nú mannin. Vaknar hann þá fljótt, og undrast mjög yfir því, að hann lifi enn. Stúlkan spyr han, hvar sendingin sé. Hann segist ekki vita, hvað orðið hafi af henni. Segir þá stúlkan, að það hafi sig lengi grunað, að ekki mundu þeir vera miklir galdramenn í eyjunum. Varð nú maðurinn mjög glaður, og nutu þau bæði hátíðarinnar með mikilli ánægju. En er leið að nýári, fór maðurinn að verða fálátur. Stúlkan spurði, hvað að honum gengi. Hann segir, að nú séu þeir í eyjunum að búa til aðra sendingu, "og magna þeir hana allir. Hún á að koma hér á gamlársdag, og þá mun ei gott að forða mér". Stúlkan sagði, að ekki gæti hún kviðið því að óreyndu, "og skaltu ekki vera hræddur við sendingar eyjamanna". Var hún nú hin kátasta, og þótti honum þá skömm að, að bera sig mjög illa. Á gamlársdag segir hann, að nú sé sendingin komin í land, "og miðar henni fljótt, því hún er ákaflega mögnuð". Stúlkan segir, að hann skuli nú ganga út með sér. Hann gerir það. Ganga þau, þangað til þau koma að skógarrunn einum. Þar nemur hún staðar, og kippir upp nokkrum hríslum. Verður þá fyrir þeim hella ein. Hún lyftir upp hellunni, og er þar jarðhús undir. Þau ganga nú ofan í jarðhúsið, og er þar dimmt og ógurlegt. Þar er ein ljóstýra dauf, og logar hún á mannsístru í hauskúpu. Þar liggur karl einn, heldur ógurlegur, í rúmfleti við ljósið. Augun í honum voru eins og blóð, og allur var hann ófrýnilegur, svo eyjamanninum þótti nóg um. Karlinn segir: "það ber eitthvað nýrra við, að þú ert á ferðinni, fóstra. Það er langt síðan ég hef séð þig, og hvað á ég nú að gera fyrir þig". Stúlkan segir honum þá allt um ferðir sínar, og um mannin, og fyrri sendinguna. Karlinn biður hana að lofa sér að sjá legginn. Hún gerir það, og verður þá karlinn allar annar, þegar hann tók við leggnum. Velti hann honum á allar lundir fyrir sér, og strauk hann allan utan. Þá segir stúlkan: hjálpaðu mér nú fljótt, fóstri; því nú er manninn farið að syfja, og það er merki þess, að sendingin er senn komin. Karlinn tekur þá tappann úr leggnum, og kemur þá flugan út úr honum. Karlinn strauk fluguna, og klappaði henni, og segir: "Farðu nú og taktu á móti öllum sendingum úr eyjunum, og gleyptu þær". Þá varð brestur mikill, og fór flugan út, og varð þá svo stór, að annar skoltur tók við himin, en annar við jörðu. Tók hún svo á móti öllum sendingum úr eyjunum, og var nú manninum borgið. Fóru þau nú heim aftur úr jarðhúsinu, og settust að á bæ stúlkunnar. Áttust þau síðan, og jukust, og margfölduðust, og uppfylltu jörðina.