Sagan af Brynjólfi biskup

Fra heimskringla.no
Hopp til navigering Hopp til søk
Velg språk Norrønt Islandsk Norsk Dansk Svensk Færøysk
Denne teksten finnes på følgende språk ► Islandsk.gif Dansk.gif


Íslenskar þjóðsögur


Sagan af Brynjólfi biskup


Eitt sinn er Brynjólfur var í vísitasíuferð, tjaldaði hann undir fjalli einu. Hafði hann með sér fjóra eða fimm menn. Um nóttina vaknar biskup við að hönd ein ákaflega stór kom á tjaldið. Var þá sagt úti fyrir "Bóndalegt tjald og bóndalegur maður". Biskup sá að þetta var skessa ein stór og mikil. Hann segir henni að taka einn hest sinn, sem hann tiltekur, og eiga hann. Skessan fór þá og tók hestinn, lagði hann á herðar sér og gekk síðan upp fjallið. Biskup áði í sama stað sumarið eftir. En er menn hans vöknuðu var hann horfinn. Þeir fara og leita hans, finna þeir hann loks í helli einum í fjallinu og var hann þar að tala við skessuna, sem komið hafði sumarið áður. Þeir sáu, að hún grét, og var sem hagl hrykki af augum henni. Ei vissu þeir hvað þau biskup höfðu talað saman. Fór hann síðan með þeim heim. Var það jafnan siður hans síðan að láta binda stóðhross eitt á bæjarhlaðið í Skálholti á aðfangadagskvöld. Var hrossið jafnan horfið um morguninn og þóttust menn vita að skessan hefði sótt það til jólanna.