Álfarnir í Drangey

Fra heimskringla.no
Hopp til navigering Hopp til søk
Velg språk Norrønt Islandsk Norsk Dansk Svensk Færøysk
Denne teksten finnes på følgende språk ► Islandsk.gif


Þjóðsögur og ævintýri frá Íslandi

Úr þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar


Álfarnir í Drangey


Einu sinni bjó megandi bóndi að Höfða á Höfðaströnd sem ekki er getið um að hafi átt neitt barn með konu sinni, en dreng fóstraði hann upp sem honum þótti mikið vænt um og sem þótti vera mjög frábær í uppvexti. Svo bar við aðfangadag jóla þegar téður drengur var á fjórtánda ári að sækja átti sauði fram í Drangey er slátra átti til jólanna. Þá fékk drengur það innfall að hann biður fóstra sinn óaflátanlega að lofa sér að fara fram í eyjuna að sækja sauðina. Bóndi var tregur til, en sagði loksins ef piltarnir leyfðu honum að fara með skipti hann sér ekki af því, og síðan lögðu þeir frá landi og tókst ferðin vel, þar til þeir voru búnir að smala féð og taka það er þeim var falið á hendur að velja til slátrunar, báru svo á skip, en létust svo hafa gleymt vettlingum upp á eyjunni. Drengur bauðst til að hlaupa upp eftir vettlingunum og á meðan héldu þeir frá eyjunni, en skildu piltinn eftir er sá á eftir þeim með tárin í augunum, en þegar hann sá þeir voru komnir svo sem miðja vegu milli lands og eyjar brast á stórhríð svo hann missti sjónar á þeim og taldi þá frá, og sjálfur bjóst hann við að deyja þarna úr hungri og kulda.
   Þegar hann var búinn að horfa sér til leiðinda á hvernig ein holskeflan eftir aðra sprungu á skerjunum án afláts svo hann þóttist ekki vel kominn þar sem svo er lítið undirlendi, og forðaði sér því upp á eyjuna að leita sér að skýli hvar hann gæti borist fyrir; var afar mikið frost og snæfok; varð honum reikað þangað sem fyrir honum varð skáli eða kofi sem byggður hafði verið handa fé til skjóls í kafaldshríðum. Gekk hann þar inn og sópaði saman hálmi og fól sig þar og hlúði að sér sem honum var mögulegt. En þegar dagsett var heyrir hann hark mikið úti hjá skálanum; þar næst heyrist honum ganga ekki allfáir menn inn í skálann og heyrir hann að sett eru niður borð og fæða á borin og svo er tekið til snæðings og drykkju. Dettur honum til hugar að sé þetta gott og örlátt fólk kunni það að sjá á sér aumur og snara til sín bita ef hann láti vita af sér, svífur því hastarlega á fætur; sér hann þá allslags fæðu á borð borna og fólk á öllum aldri að neyta þess sem framreitt var. En þegar það sér dreng drífur það allt út og skildi eftir allt sem á borðunum var, vín og vistir, og sá öngvan mann framar. Tók þá piltur til matar og hafði nógan forða þangað til á nýársdag og kom aldrei úr kofanum þann tíma.
   Nú víkur sögunni til þeirra sem sauðina sóttu að þeir náðu með naumindum landi, en heimilisfólkið saknaði drengs ekki fyrr en á jóladagsmorguninn að átti að fara að syngja. Spyr bóndi hvert drengur ætli ekki að syngja með sér eins og hann sé vanur. Þá er eins og þeir vakni af svefni sem skildu drenginn eftir, og kváðust hafa gleymt honum því hann hefði ekki verið nærstaddur þegar þeir hefðu látið frá eyjunni. Bónda bregður illa við og veitir þeim átölur, en hér varð við að sitja. Hríðina birti ekki fyrr en á nýársdag. Þá réðist bóndi fram í eyjuna og sér hvergi neinn mannsferil svo hann telur sjálfsagt fósturson sinn frá, reikaði þó þangað sem kofinn stóð. Þá heyrir drengur, sem nú var að taka sér bita af því er honum fénaðist á jólanóttina, málróm fóstra síns og tekur silfurstaup og gengur út að fagna karlinum og sýnir honum staupið, og fagnar karlinn fóstursyni sínum innilega og þykist hann úr helju heimt hafa. Síðan fara þeir inn í skálann, en gripu í tómt því þá var allt horfið svo þeir héldu ekki eftir neinu nema silfurstaupi því er drengurinn hélt á þegar hann heyrði mannamálið og gekk út.