Tröllkona drukknar

Fra heimskringla.no
Hopp til navigering Hopp til søk
Velg språk Norrønt Islandsk Norsk Dansk Svensk Færøysk
Denne teksten finnes på følgende språk ► Islandsk.gif


Þjóðsögur og ævintýri frá Íslandi


Sagnakver
Skúla Gíslasonar

Sigurður Nordal gaf út
Reykjavík 1947


Tröllkona drukknar


Sagt er að tröllkona nokkur hafi eitt sinn ætlað að vaða frá Noregi til Íslands, en sagt, að áll einn mjór væri í miðju hafi svo djúpur, að þar mundi kollur sinn vökna. Þegar hún kom að álnum, ætlaði hún að ná í skip, er þar var á siglingu, og styðjast við það yfir álinn. En hún missti skipsins og varð um leið fótaskortur, svo hún steyptist í álinn og drukknaði. Var það lík hennar, sem rak hér eitt sinn, og var það svo stórt, að ríðandi maður gat riðið undir knébótina kreppta.