Formáli útgefenda Boga Th. Melsteð
| Velg språk | Norrønt | Islandsk | Norsk | Dansk | Svensk | Færøysk |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Denne teksten finnes på følgende språk ► |
LILJA
Finnur Jónsson
bjó til prentunar
1913
Lilja er hið dýrðlegasta kvæði, sem kveðið hefur verið á islenska tungu, enda segir orðtækið: "öll skáld vildu Lilju kveðið hafa". Nú er Lilja þó flestum íslendingum ókunn. Smárit þessi byrja því með handhægri útgáfu af henni handa alþýðu.
Lilja hefur nokkrum sinnum verið gefin út áður handa lærðum mönnum og erlendum þjóðum, en aldrei handa ís-lenskri alþýðu. Útgáfa þessi er rjettari en fyrri útgáfurnar, af því að sá maður hefur búið hana undir prentun, sem til þess er færastur og rannsakað hefur handritin af henni.
Það er eigi gert ráð fyrir því, að smárit þessi verði mörg; þó fer það nokkuð eptir því, hverjar viðtökur þau fá hjá alþýðu. Það eitt verður í þau tekið, sem fróðleikur er í og almennningi má að gagni verða eða til góðs og skemt-unar. Ef smáritunum verður vel tekið, verða gefnar út í þeim nokkrar sögur og alþýðleg smárit og greinar eptir Pál Melsteð. Vita allir Íslendingar hvernig hann sagði frá og
ritaði.
28. desember 1912.
B. Th. M.
Allur rjettur er áskilinn.
Aðalútsala hjá Arinb. Sveinbjarnarsyni, bóksala í Reykjavík.