Formáli útgefenda Boga Th. Melsteð

Fra heimskringla.no
Hopp til navigering Hopp til søk
Velg språk Norrønt Islandsk Norsk Dansk Svensk Færøysk
Denne teksten finnes på følgende språk ► Islandsk.gif


Eysteinn Ásgrímsson
LILJA


Finnur Jónsson
bjó til prentunar
1913


Formálsorð útgefenda Boga Th. Melsteð


Lilja er hið dýrðlegasta kvæði, sem kveðið hefur verið á islenska tungu, enda segir orðtækið: "öll skáld vildu Lilju kveðið hafa". Nú er Lilja þó flestum íslendingum ókunn. Smárit þessi byrja því með handhægri útgáfu af henni handa alþýðu.
   Lilja hefur nokkrum sinnum verið gefin út áður handa lærðum mönnum og erlendum þjóðum, en aldrei handa ís-lenskri alþýðu. Útgáfa þessi er rjettari en fyrri útgáfurnar, af því að sá maður hefur búið hana undir prentun, sem til þess er færastur og rannsakað hefur handritin af henni.
   Það er eigi gert ráð fyrir því, að smárit þessi verði mörg; þó fer það nokkuð eptir því, hverjar viðtökur þau fá hjá alþýðu. Það eitt verður í þau tekið, sem fróðleikur er í og almennningi má að gagni verða eða til góðs og skemt-unar. Ef smáritunum verður vel tekið, verða gefnar út í þeim nokkrar sögur og alþýðleg smárit og greinar eptir Pál Melsteð. Vita allir Íslendingar hvernig hann sagði frá og ritaði.

28. desember 1912.

B. Th. M.


Allur rjettur er áskilinn.


Aðalútsala hjá Arinb. Sveinbjarnarsyni, bóksala í Reykjavík.