Íslenska rúnakvæðið
Hopp til navigering
Hopp til søk
Íslenskar þjóðvísur og kvæði
| Velg språk | Norrønt | Islandsk | Norsk | Dansk | Svensk | Færøysk |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Denne teksten finnes på følgende språk ► |
Matthías Viðar Sæmundsson
Galdrar á Íslandi 1992.
- Fé er frænda róg
- og flæðar viti
- og grafseiðs gata.
- aurum fylkir.
- Úr er skýja grátur
- og skara þverrir
- og hirðis hatur.
- umbri vísi.
- Þurs er kvenna kvöl
- og kletta búi
- og varðrúnar ver.
- Saturnus þengill.
- Óss er aldingautur,
- og Asgarðs jöfur
- og Valhallar vísi.
- Júpíter oddviti.
- Reið er sitjandi sæla
- og snúðug ferð
- og jórs erfiði.
- iter ræsir.
- Kaun er barna böl
- og bardaga för
- og holdfúa hús.
- flagella konungur.
- Hagall er kaldakorn
- og krapa drífa
- og snáka sótt.
- grando hildingur.
- Nauð er þýjar þrá
- og þungur kostur
- og vássamleg verk.
- opera niflungur.
- Ís er árbörkur
- og unnar þak
- og feigra manna fár.
- glacies jöfur.
- Ár er gumna góði
- og gott sumar
- og algróinn akur.
- annus allvaldur.
- Sól er skýja skjöldur
- og skínandi röðull
- og ísa aldurtregi.
- rota siklingur.
- Týr er einhendur áss
- og úlfs leifar
- og hófa hilmir.
- Mars tiggi.
- Bjarkan er laufgað lim
- og lítið tré
- og ungsamlegur viður.
- abies buðlungur.
- Maður er manns gaman
- og moldar auki
- og skipa skreytir.
- homo mildingur.
- Lögur er vellanda vatn
- og víður ketill
- og glömmunga grund.
- lacus lofðungur.
- Ýr er bendur bogi
- og óbrotgjarnt járn
- og fífu fárbauti.
- arcus ynglingur.