Ábæjar- eða Nýjabæjarskotta - Skotta vakinn upp

Fra heimskringla.no
Hopp til navigering Hopp til søk
Velg språk Norrønt Islandsk Norsk Dansk Svensk Færøysk
Denne teksten finnes på følgende språk ► Islandsk.gif


Þjóðsögur og ævintýri frá Íslandi

Úr þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar

Eftir sögnum úr Skagafirði


Ábæjar- eða Nýjabæjarskotta
Skotta vakinn upp


Ólafur hét bóndi er bjó á Steiná í Svartárdal. Hann var haldinn fjölkunnugur. Einu sinni var hann á ferð um nótt, og lá leið hans fram hjá Bergstöðum. Þegar hann reið hjá kirkjugarðinum, sá hann, hvar maður var að glíma við nýuppvakinn draug, en draugsi var rétt búinn að keyra hann undir sig. Kallar þá Ólafur til mannsins: "Bíttu í vinstra brjóstið á henni, bölvaður!" Ólafur reið leiðar sinnar, en sagt er, að maðurinn hafifarið að ráðum hans og hafi það dugaðþ En nú maður þessi, sem raunar var sjálfur presturinn á Bergstöðum, Þorðvarður Bárðason, öfundarhatur til Ólafs, af því að hann kynni betur. Er mælt, að hann hafi undir eins búið út drauginn og sent Ólafi. En Ólafur var viðbúinn af sökum kunnáttu sinnar og kom draugsa ofan í hrosslegg, lét hann ofan í kistuhandraða og geymdi hann þar, meðan hann lifði. En rétt fyrir dauða sinn bað hann Guðbjörgu, dóttur sína, sem gift var Jóni bónda Jónssyni á Ábæ í Auasturdal í Skagafirði, að brenna legginn að sér látnum, en varast skyldi hún að taka tappann úr. Eftir andlát Ólafs tók Guðbjörg legginn upp úr kistunni og af forvitni tappann úr leggnum. Þá sá hún, að fluga flaug úr honum og breyttist undir eins í kvenmannslíki og spurði, hvað hún ætti að gjöra. "Farðu að Nýjabæ", segir Guðbjörg, "og dreptu Guðmund bónda Nikulásson," því Jón, maður Guðbjargar, vildi hafa Guðmund burt af jörðinni, en flytjast þangað sjálfur. Draugurinn fór þegar að Nýjabæ og hitti Guðmund bónda, en hann gat varizt draugnum, en um vorið flutti hann sig burt að Krákugerði, því um veturinn var hann orðinn hálfær af aðsókn Skottu, en þá fluttu þau Jón og Guðbjörg sig að Nýjabæ. Draugurinn fylgdi þeim jafnan síðan og þeirra ætt og er ýmist kölluð Ábæjar- eða Nýjabæjarskotta. Það er mælt, að Skotta hafi ráðið Jóni bana, því þegar hann lá banaleguna, vakti stúlka hjá honum með ljós. Eitt kveld dró úr henni allan máttinn, og lagði hún sig fyrir, og fannst henni, að svefnhöfgi félli á hana. Henni sýndist eða dreymdi, að roðma miklum sló á ljósið, og heyrðist gengið inn hjá sér, og heyrðist henni soga eða korra í Jóni. Síðan heyrðist henni gengið fram hjá sér aftur. Síðan fékk hún máttinn aftur og hugði nú að karli, og var hann þá örendur. Skotta fór nú að ganga þar um híbýli og drepa ýmsar skepnur og sást jafnan á undan hverjum þeim, sem kom af heimili Jóns og Guðbjargar. Guðrún hét dóttir Jóns og Guðbjargar og bjó í Héraðsdal. Skotta áreitti hana. Guðrúnu var því komið í burtu að Vatni. Þar bjó Jónas bóndi. Þá bar lítið á aðsókn Skottu, meðan hún var þar, en þegar hún fór heim aftur magnaðist ágangur Skottu og geðveiki Guðrúnar, og tók Guðrún sig af lífi um síðir. Jón bóndi sá oft Skottu ganga um híbýli, meðan Guðrún var þar. Margar sögur gengu af Skottu og ganga enn af hrekkjapörum hennar. Hún drepur bæði fé og stórgripi, bæði á Merkigili og víðar. Stundum sést hún klifrast upp um bita í baðstofum og hanga þar um nætur. Einu sinni sást hún sitja á fjóshaug og fleygja taðkögglum. Þau Jón og Guðbjörg áttu bola í fjósinu. Einu sinni sóttu menn tarf að Miklabæ, en rétt áður en þeir komu, rak kvíga upp óttalegt baul í fjósinu og datt dauð niður, en presturinn, sem þá var þar, vildi synja þeim bolans, því þeir hefðu svo vonda fylgju, þar sem Skotta væri. Eftir það að Guðmundur bóndi var kominn í burt frá Nýjabæ að Krákugerði, reið hann einu sinni út Uppsalamýrar í rökkri. Þá vissi hann ei fyrri til en það var eins og fótunum væri kippt undan hestinum, og hraut Guðmundur af baki og fótbrotnaði. En þegar hann stóð upp aftur, sá hann Skottu skoppa út mýrina og hverfa fyrir hæð eina. Þegar Hjálmar bóndi (síðar á Bólu) bjó á Nýjabæ, kom hann einu sinni að Skottu ,þar sem hún var að drepa sauð. Þá rak hann Skottu út fyrir Tinná, og hefur hún aldrei komizt síðan fram fyrir hana, því Hjálmar var haldinn andheitur. Einu sinni sofnaði fjármaðurinn á Merkigili í fjárhúsi einu. Kom þá Skotta þangað, þegar hann var að sofna, og ætlaði að kyrkja hann, en hann vaknaði við, og þá hvarf hún á brott. Skottu er þannig lýst: Hún er á vöxt við tólf vetra stúlku; þó hefur hún stundum sýnzt sem tröll. Hún er á mórauðu stuttpilsi og sauðsvartri peysu. Stundum hefur hún sézt á skinnpeysu eða -fötum og með skúflausa skotthúfu mórauða.