Full Þórs í miðsvetrarblóti fornleifafjelagsmanna 1881
| Velg språk | Norrønt | Islandsk | Norsk | Dansk | Svensk | Færøysk |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Denne teksten finnes på følgende språk ► |
Full Þórs í miðsvetrarblóti fornleifafjelagsmanna 1881
Nú heitum bræður að heiðnum sið
á Þór!
Hann félagi voru leggi lið -
og bjór,
og auðgi safnið að eigum fornum -
en einna mest þó að drykkjarhornum!
Nú súpum og syngjum
og syngjum og súpum
í botn!
Hann reki ísinn og annað grand
á burt,
og láti hvalina hlaupa' í land
á þurt!
Með austanpósti þú átt að senda
oss atgeir Gunnars á Hlíðarenda.
Nú súpum og syngjum
og syngjum og súpum
í botn!
Og flókna lögbergis gátu greið
þú skjótt!
Að hofum fornum og haugum leið
oss fljótt!
Og gefðu safninu hamarinn harða
og heiðið afl þinna megingjarða.
Nú súpum og syngjum
og syngjum og súpum
í botn!
Nú drekkum freyðandi fulla skál
af bjór!
Og heitum þambandi þyrstir sál
á Þór!
En hver sem ei tæmir, hann skal þoka
og hafa bekk með Útgarðsloka.
Nú súpum og syngjum
og syngjum og súpum
í botn!