Á sprengisandi (Grímur Thomsen)
Hopp til navigering
Hopp til søk
Íslensk kvæði og vísur
Á sprengisandi
Velg språk | Norrønt | Islandsk | Norsk | Dansk | Svensk | Færøysk |
---|---|---|---|---|---|---|
Denne teksten finnes på følgende språk ► |
- Ríðum, ríðum og rekum yfir sandinn,
- rennur sól á bak við Arnarfell,
- hér á reiki er margur óhreinn andinn,
- úr því fer að skyggja á jökulsvell.
- Drottinn leiði drösulinn minn,
- drjúgur verður síðasti áfanginn.
- Þey þey! þey þey! þaut í holti tóa,
- þurran vill hún blóði væta góm,
- eða líka einhver var að hóa
- undarlega digrum karlaróm.
- Útilegumenn í Ódáðahraun
- eru kannske að smala fé á laun.
- Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn,
- rökkrið er að síga á Herðubreið,
- álfadrottning er að beisla gandinn,
- ekki er gott að verða á hennar leið.
- Vænsta klárinn vildi eg gefa til
- að vera kominn ofan í Kiðagil.